Meginhlutverk Félags hljómplötuframleiðenda er:
- Að stuðla að samstöðu í greininni og gæta sameiginlegra hagsmuna og réttinda þeirra sem framleiða hljómplötur og vera þannig málsvari gagnvart löggjafarvaldinu, hinu opinbera, erlendum samtökum hljómplötuframleiðenda, höfundarréttarsamtökum, samtökum flytjenda, útvarps- og sjónvarpsstöðvum og öðrum notendum hljómplatna.
- Að vera ráðgefandi varðandi framleiðslu, lagasetningu, höfundarrétt, dómsmál, opinber gjöld og annað í tengslum við útgáfu hljómplatna.
- Að sporna við ólöglegri notkun útgefinna hljómplatna og hljóðrita, þ.á.m. ólöglegri dreifingu.
- Að standa að ýmsum sameiginlegum verkefnum innan greinarinnar bæði hvað snertir markaðs- og kynningarmál, og önnur mál sem félagsmenn ákveða hverju sinni.
- Að taka við greiðslum, og ráðstafa þeim til aðila að félaginu eftir gildandi úthlutunarreglum sem samþykktar hafa verið af félags- eða aðalfundi.
- Að koma fram fyrir hönd aðila að félaginu gagnvart Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH), Innheimtumiðstöð gjalda (IHM) og Alþjóðasamtökum hljómplötuframleiðenda, International Federation of the Phonographic Industry (IFPI) og öðrum hagsmunasamtökum sem félagið kann að verða aðili að.